Thursday, October 1, 2015

Stytting á flottu Kenneth Cole buxunum mínum

Þessa elsku keypti ég í Árvirkjanum á Selfossi 2002, fyrir fyrstu vaxtabæturnar mínar.

Með nýjum þræði þarf nýja spólu.

Stóðst ekki mátið þegar ég keypti gráa þráðinn, að bæta enn einum skærum í safnið.

Þetta er faldfótur.

Ég saumaði með overlock spori rétt ofan við línu sem sýndi hve mikið þyrfti að stytta. Faldfóturinn hjálpaði til við að fylgja línunni eftir af nákvæmni.

Og svo var það hin skálmin, ég festi saumana niður með títuprjónum svo þeir flettust ekki yfir á ranga hlið með fætinum.

Þegar ég fór í ónefnda vefnaðarvöruverslun og bað um ósýnilegan þráð til að falda með, horfði konan á mig eins og ég væri frá Mars. Til að hlutirnir yrðu ekki enn vandræðalegri  seldi hún mér gráa þráðinn og lét mig hafa það að líta út eins og kjáni. Nokkrum dögum síðar fór ég í aðra hannyrðaverslun bara til að skoða. Það fyrsta sem ég sá þar í rekka....ósýnilegur þráður til að falda með.

Klippt....eins gott að mælingar séu ekki vitlausar.

Búið að klippa.

Brotið upp á, jafnmikið og fyrri faldur var.

Sést þráðurinn?

Virðist hafa lukkast.

Ú je, svaka gella í buxum í réttri sídd.

Monday, September 28, 2015

Kryddað skipulag

Loksins hægt að fá á Íslandi og það í IKEA, kryddstauka sem líta út eins og kryddstaukar! Tilvaldir fyrir skipulagið
Hjá henni elsku vinkonu minni er hægt að dánlóda svona fallegum kryddlímmiðum.

Kryddhillan var frekar eehhh

Klippt og límt

Þau krydd sem áttu samastað með skipulaginu voru sett á blaðið...ekki gott að fara rugla kryddum saman

Miklu fallegra

Allt eins....og ég himinlifandi með útkomuna....vantar fleiri kryddstauka!

Sunday, September 27, 2015

Amaryllis

 Keypti Amaryllis lauka um daginn, geymdi þá í bréfpokum fram að gróðursetningu.
Þetta voru skástu laukarnir að mínu mati, stinnir og ekki marðir eða með illa farið hýði og myglu.
Fyrsti kominn í pottinn. "Forced Bulbs" eiga að hafa þriðjung upp úr pottinum.
Nú er bara að bíða og sjá hvort þeir taki ekki við sér :-)
Ja hérna hér!

Tuesday, July 12, 2011

My hood

 Gamli inngangurinn í Laugalækjarskóla, þarna labbaði maður inn og út í 3 ár!
 Háspennuskúrinn hjá róló þar sem var farið í YFIR-leikinn öll sumur
 Á þessu malbikaða plani bak við steinana lærði ég að hjóla upp áeigin spýtur, þýddi ekkert fyrir gamla að ætla að kenna mér. Þetta er gamla blokkin mín, prentarablokkin svokallaða byggð 1959. Þangað flutti ég í júní 1985 og flutti út í febrúar 2001.
 Dætur mínar að feta í fótspor mín
 Þarna var Kjötmiðstöðin í gamla daga, bakaríið er þó enn á sama stað.
 Þarna á Brekkulæk voru verslanir í denn, Lækjarkjör, sjoppa og fiskbúð, nú er ekkert!
 Þarna bjó Stefanía í gamla daga
 Oft hefur verið labbað í gegnum þetta port.
 Svo flutti Stefanía þangað '91
 Það er mjög gaman að hjóla niður þessa brekku
 Laugarásvegurinn í fjarska sést blokkin mín
 Laugardalslaugin, var þarna mikið sumarið '91
í þessum glugga sátu 10. bekkingar í frímínútum..............aðeins 10. bekkingar!

Sunday, May 29, 2011

Rósagarðurinn fer að verða til.....................fleiri rósir hafa bæst í hópinn

 Aloha (klifurrós)
 Blanc double de Coubert
 Abraham Darby
 Constence Spry
 F.J. Grootendorst
 L.D. Braithwait
 Moje Hammerberg
 Empress Josephine
 Harrisons yellow
 Mundi
Stanwell Perpetual

Monday, May 9, 2011

Páskakökurnar mínar, þetta árið

 Kókoshnetuskýjakaka
 Súkkulaði/piparmintubollakökur með piparmintukremi og súkkulaðieggjum.
 ofurbakarinn sjálfur
 Angelfoodcake að kólna
 Angelfoodcake,  amerísk klassík yömmí
Kókoshnetuskýjakakan er gerð úr Angelfoodcake með 7-minute frosting og ferskum kókoshnetuflögum.