![]() |
Þessa elsku keypti ég í Árvirkjanum á Selfossi 2002, fyrir fyrstu vaxtabæturnar mínar. |
![]() |
Með nýjum þræði þarf nýja spólu. |
![]() |
Stóðst ekki mátið þegar ég keypti gráa þráðinn, að bæta enn einum skærum í safnið. |
![]() |
Þetta er faldfótur. |
![]() |
Ég saumaði með overlock spori rétt ofan við línu sem sýndi hve mikið þyrfti að stytta. Faldfóturinn hjálpaði til við að fylgja línunni eftir af nákvæmni. |
![]() |
Og svo var það hin skálmin, ég festi saumana niður með títuprjónum svo þeir flettust ekki yfir á ranga hlið með fætinum. |
![]() |
Klippt....eins gott að mælingar séu ekki vitlausar. |
![]() |
Búið að klippa. |
![]() |
Brotið upp á, jafnmikið og fyrri faldur var. |
![]() |
Sést þráðurinn? |
![]() |
Virðist hafa lukkast. |
![]() |
Ú je, svaka gella í buxum í réttri sídd. |
No comments:
Post a Comment