Thursday, October 1, 2015

Stytting á flottu Kenneth Cole buxunum mínum

Þessa elsku keypti ég í Árvirkjanum á Selfossi 2002, fyrir fyrstu vaxtabæturnar mínar.

Með nýjum þræði þarf nýja spólu.

Stóðst ekki mátið þegar ég keypti gráa þráðinn, að bæta enn einum skærum í safnið.

Þetta er faldfótur.

Ég saumaði með overlock spori rétt ofan við línu sem sýndi hve mikið þyrfti að stytta. Faldfóturinn hjálpaði til við að fylgja línunni eftir af nákvæmni.

Og svo var það hin skálmin, ég festi saumana niður með títuprjónum svo þeir flettust ekki yfir á ranga hlið með fætinum.

Þegar ég fór í ónefnda vefnaðarvöruverslun og bað um ósýnilegan þráð til að falda með, horfði konan á mig eins og ég væri frá Mars. Til að hlutirnir yrðu ekki enn vandræðalegri  seldi hún mér gráa þráðinn og lét mig hafa það að líta út eins og kjáni. Nokkrum dögum síðar fór ég í aðra hannyrðaverslun bara til að skoða. Það fyrsta sem ég sá þar í rekka....ósýnilegur þráður til að falda með.

Klippt....eins gott að mælingar séu ekki vitlausar.

Búið að klippa.

Brotið upp á, jafnmikið og fyrri faldur var.

Sést þráðurinn?

Virðist hafa lukkast.

Ú je, svaka gella í buxum í réttri sídd.